Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundur: Lucinda Riley

Hvar er sjöunda systirin? Og hver er hún?

D’Apliése-systrunum sex hefur öllum tekist að uppgötva leyndarmál uppruna síns en þær vita að sjöunda systirin er enn ófundin.

Þær hafa eina vísbendingu: mynd af hring með stjörnulaga smaragði. Leitin að týndu systurinni mun leiða þær út um allan heim – frá Nýja Sjálandi til Kanada, Englands, Frakklands og Írlands. Þær sameinast í viðleitni sinni til að fullkomna fjölskylduna.

Við leitina uppgötva þær sögu ástar, styrks og fórna sem hófst næstum 100 árum áður, þegar aðrar hugrakkar konur lögðu undir allt undir til að breyta heiminum og frelsa Írland undan oki Breta.

Týnda systirin er sjöunda bókin í bókaflokknum um systurnar sjö, einum vinsælasta bókaflokki í heimi nú um stundir.

Arnar Matthíasson þýddi.

5.310 kr.
Afhending