Heimilisfang
Velja afhendingarmáta

Better you Magnesium flögur 1 kg

Magnesíum er fjórða mikilvægasta steinefni líkamans og er gríðarlega mikilvægt fyrir heilsu okkar. Það kemur við sögu í yfir 300 mismunandi efnaskiptaferlum í líkamanum og er best þekkt fyrir að hafa slakandi áhrif á vöðva líkamans. Líkaminn getur tekið upp magnesíum í gegnum húðina og því er tilvalið að fylla á magnesíum birgðirnar með því að bæta magnesíum út í baðið eða heita pottinn til að endurnæra líkamann eftir langan dag. Magnesíum flögurnar leysast upp í vatni og eru einstaklega slakandi og róandi fyrir sál og líkama. Einnig er tilvalið að blanda flögunum í fótabað sem getur verið áhrifaríkt gegn fóta pirring og þreytu í fótum eða jafnvel blandað þeim í baðið eða heita pottinn. Upptaka Magnesíum í gegnum húðina er áhrifarík. Magnesíum flögurnar eru hreinasta form af magnesíum sem hægt er að fá. Magnesíum stuðlar að:

  • viðhaldi eðlilegra beina
  • viðhaldi eðlilegra tanna
  • eðlilegri sálfræðilegri starfsemi
  • eðlilegri vöðvastarfsemi
  • eðlilegri prótínmyndun
  • eðlilegri starfsemi taugakerfisins
  • eðlilegum orkugæfum efnaskiptum
  • því að draga úr þreytu og lúa

Magnesíum flögurnar koma í tveimur stærðum ; 250 gr. – 1 kg. Til fróðleiks: Við fáum magnesíum úr ýmsum matvælum en samt sem áður er það mjög algengt að fólk sé í skorti og t.d. er talið að allt að 80% Bandaríkjamanna sé í skorti. Næringarsnauður jarðvegur sem nýttur er til ræktunar, lélegt/slæmt mataræði, óhófleg áfengis- og koffínneysla, ýmis lyf og mikil streita er meðal þess sem veldur skorti og svo skolast steinefni líka út þegar við svitnum. Notkun: Fótabað: Blandið um 150 gr. í hentugt fat, bala eða í baðið og setjið fætur í 20 mínútur eða lengur. Fótabaðið er sérlega hentugt fyrir þreytta og þrútna fætur og ef fólk þjáist affótakrampa, bjúg, sinadrátt eða fótaóeirð eru magnesíum flögurnar góður kostur til að flýta fyrir endurheimt. Bað:Blandið um 250 – 500 gr. í baðkar og baðið ykkur í 20 himneskar mínútur eða lengur eftir þörfum. Magnesíum baðmeðferð er einkum hentug gegn krampa og þreytu í vöðvum. Ef þú ert með auma og/eða stirða liði er einstaklega gott að fara í magnesíum bað eftir langar og strangar æfingar til að flýta vöðvabata og endurheimt. Ekki skal nota meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.

2.140 kr.

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun