Flug og hótel! Kraká 1.-4. maí. Uppgötvaðu töfra borgarinnar
Nánari Lýsing
Kraká er ein elsta borg Evrópu þar sem fallegar sögulegar byggingar setja svip sinn á borgina. Steinilögð stræti og falleg torg er það sem einkennir þessa huggulegu borg. Miðpunktur borgarinnar er torgið Rynek Główny þar sem kaffihús, veitingastaðir og glæsilegar byggingar standa.
Gamli bærinn er sjarmerandi og heillandi með sínum þröngu götum þar sem fullt er af veitingastöðum og börum. Til að kanna gamla bæinn ætti alltaf að byrja á Royal Route eða Konungsleiðinni, sem var krýningarleið pólsku konunganna frá 14. – 16 öld. Flest helstu kennileiti gamla bæjarins liggja meðfram þessari leið frá St. Florians hliðinu að Wawel kastala. Enginn ætti að missa af Kazimierz, gyðingahverfinu, það hefur verið endurvakið og breytt í nútímalegt hverfi með flottum kaffihúsum, bjór brugghúsum og galleríum.
Mercure Krakow Stare Miasto
Er huggulegt og vel staðsett í um 10 mínútna göngufjarlægð frá gamla bænum. Stutt er að fara í verslunarmiðstöðin Galeria Krakowska en hún er hinu megin við götuna. Miðborgin og Florian Gate eru í um 15 mínútna fjarlægð frá hótelinu. Herbergin eru hugguleg, með baðherbergi, hárþurrku, loftkælingu, sjónvarpi og wifi. Gestamóttaka er opin allan sólarhringinn og á hótelinu er veitingastaður, bar og líkamsræktaraðstaða.
Radisson Blu Hotel Krakow
Er staðsett í nokkurra mínútna göngufjarlægð frá aðalmarkaðstorginu í gamla bæ Kraká. Herbergin eru hugguleg og vel búin. Á hótelinu er heilsulind og líkamsrækt.
Smáa Letrið
- Brottför 1. maí 2025
- Heimkoma 4. maí 2025
- Þú kaupir tilboðið hér á Aha.is
- Því næst hefur þú samband við Aventura ferðaskrifstofu í síma 556.2000 eða sala@aventura.is og staðfestir bókun.
- Verð á mann er 92.900 kr. fyrir Mercure Krakow Stare Miasto,
- Verð á mann er 94.100 kr. fyrir Radisson Blu Hotel Krakow,
Gildistími: 01.02.2025 - 01.05.2025
Notist hjá
Vinsælt í dag