Flug og gisting - Upplifðu lúxus í Budapest á ótrúlegu verði.
Nánari Lýsing
Beint flug til Budapest 31. okt til 3. nóv og gisting í á fjögurra stjörnu hóteli í hjarta borgarinnar.
Novotel Budapest Centrum
Glæsilegt 4 stjörnu hótel í hjarta Budpest, þar sem þú gengur í allar áttir, að þinghúsinu, niður að ánni, að göngugötunni Vaci Utca. Frábært tækifæri til að upplifa borgarveislu á besta tíma ársins í fegurstu borg Evrópu.
Tignarleg og glæsileg Budapest er heillandi áfangastaður fyrir bæði þá sem vilja uppgötva söguna og forna Evrópu og þá sem vilja njóta verslunar, matar og drykkjar. Borgin er sannkölluð perla Evrópu, þar sem stórfengleg leikhús, hallir, fornar víggirðingar og sögulegir minnisvarðar um mikla ungverska konunga vekja aðdáun. Ekki má gleyma hinum stórbrotna þinghúsi, sem er glæsilegt hvort sem horft er á það dags eða nætur.
En það er meira sem gerir ungversku höfuðborgina að sérstökum stað. Það er einfaldlega ómögulegt að láta það fram hjá sér fara að setjast niður á hlýlegum veitingastað, smakka ljúffengt gúllas og njóta flösku af Tokaji-víni á kyrrlátu kvöldi. Einnig er ómissandi að heimsækja hin frægu baðhús, sem Budapest er þekkt fyrir víða um Evrópu. Það er einfaldlega of mikið aðdráttarafl í borginni til að telja allt upp.
Best er því að fara í borgarferð til Budapest og sjá allt með eigin augum.
Skemmtilegt að gera í Budapest:
Ungverska þinghúsið: Þetta er ein glæsilegasta bygging borgarinnar og helsta kennileiti hennar. Hægt er að fara í leiðsögn um bygginguna.
Széchenyi Baths: Einn vinsælasti baðstaðurinn í Budapest, með 15 innilaugum og 3 stórum útilaugum. Þar er einnig hægt að komast í sauna og njóta fjölmargra nuddmeðferða. Böðin eru opin lengi á kvöldin, og á laugardagskvöldum er haldið partý með tónlist og fjöri.
Kastalinn í Budapest: Staðsettur á Castle Hill og eitt af þekktustu kennileitum borgarinnar. Útsýnið yfir Keðjubrúnna og Þinghúsið er stórfenglegt.
Smáa Letrið
- Innifalið er flug, gisting, flugvallarskattar, íslensk fararstjórn.
- Kaupandi fær sent gjafabréf og staðfestir ferðina með því að senda póst á sala@aventura.is með upplýsingum um alla farþega, fullt nafn, fæðingardag og ár, símanúmer og netfang.
- Brottför er að morgni 31. okt. og heimkoma að kvöldi 3. nóv. Beint flug.
- Verð er á mann miðað við tvo í herbergi
Gildistími: 31.10.2024 - 03.11.2024
Notist hjá
Vinsælt í dag