Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundur: Herdís Egilsdóttir

Pappírs-Pési er mörgum kunnur, en fyrir 35 árum kom út um hann bók, sem og kvikmynd og sjónvarpsþættir.

Nýju bækurnar um Pappírs-Pésa eru byggðar á sama grunni en nú lendir hann í nýjum ævintýrum sem sér ekki fyrir endann á.

Herdís Egilsdóttir kennari og rithöfundur hefur skrifað fjölda barnabóka og kennsluhandbóka á sínum ferli.  Bækurnar um Pappírs-Pésa eru 15 alls.

Bækurnar um Siggu og skessuna í fjallinu komu fyrst út árið 1966 hjá Ísafold, en frá 1999 hefur þeim fjölgað og eru nú alls 16. Þær eru nú fáanlegar í 3. útgáfu.

Það kemur SAGA út úr mér er kennsluhandbók í lestri. Hún kom út árið 2015 og nýtist öllum sem vilja stuðla að lestrargetu barna.

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun