Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundur: Tommi Kinnunen

María er ung ljósmóðir, sjálfstæð og úrræðagóð, en það þykir samtíðarfólki hennar tortryggilegt. Með tímanum öðlast hún verðskuldaðan virðingarsess, en geldur hann dýru verði. Lahja, dóttir Maríu, er fædd utan hjónabands og dreymir um að öðlast ýmis lífsgæði sem móðir hennar neitaði sér um hennar vegna. Að stríðinu loknu snýr hún aftur í sviðnar rústirnar af heimabæ sínum ásamt eiginmanninum Onna, sem fær ekki höndlað hamingjuna. Áratugum síðar á Karína eftir að setja mark sittá gleðisnautt hús tengdaforeldranna og brjóta niður þrúgandi múra þagnarinnar.

Þar sem fjórir vegir mætast er fyrsta skáldsaga höfundar. Hún sló rækilega í gegn í heimalandinu, hlaut verðskulduð verðlaun og viðurkenningar og hefur nú verið þýdd á fjölda tungumála. Stórbrotin og heillandi saga sem spannar hartnær alla síðustu öld.

Erla E. Völudóttir þýddi úr finnsku.

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun