Höfundur: Peter Madsen
Næstsíðasta bókin í þessum vinsæla myndasagnabálki.
Frjósemisguðinn Freyr fær augastað á jötnameyjunni Gerði og Þjálfi er sendur til Gymisgarða í gervi Skírnis skósveins til þess að sannfæra stúlkuna um að eiga stefnumót við guðinn. Sú ferð reynist sannkallað hættuspil því að Ragnarök nálgast óðum og mikill jötnaher hefur safnast fyrir á staðnum.