Flokkar:
Móðurtengsl - meðgöngudagbók
Þessi bók gefur þér tækifæri á að varðveita einstakar minningar, halda utan um skipulag og skrá niður allt það mikilvægasta á þessum einstöku tímamótum.
Bókin er samtals 156 blaðsíður og í henni er að finna síður til að skrá niður minnisstæð atriði, skipulag til að aðstoða við utanumhald á heilsu, læknisheimsóknum, almennri líðan og fleiru. Bókin gefur tækifæri á að skrifa niður markmið, drauma og framtíðarsýn og inniheldur einnig auðar síður sem geta nýst vel.
Meðganga er allskonar og engin meðganga er eins. Allskyns tilfinningar geta komið og eðlilegt að líkaminn breytist. Að hafa tækifæri að skrifa allt á einn stað getur hjálpað móður að efla sjálfan sig og gefur henni tækifæri í framtíðinni að líta til baka á þennan tíma í lífi sínu.
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun