Flokkar:
Höfundur: Alda Björk Valdimarsdóttir
Ljóð Öldu Bjarkar snúast um mörk tjáningarinnar, strengina sem liggja milli einstaklingsins og tilvistarinnar, sambönd sem verða til og rofna, og þörfina á að nefna veruleikann, jafnt til góðs og ills.
Alda Björk Valdimarsdóttir er dósent í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands. Hún er með doktorspróf í bókmenntum og skrifaði ritgerð sína um Jane Austen. Alda hefur birt ljóð sín víða, m.a. í TMM og Stínu og var valin Háskólaskáldið 2013 í ljóðasamkeppni Stúdentablaðsins.
Konan fékk rödd karlsins
lánaða stutta stund.Hún tók við nafni hans
eins og brauðmola.Hún drakk vatn
úr lófa hans.Hún sá auga sitt
í enni hans,sjálfa sig án nafns og orða.
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun