Xiaomi Robot Vacuum X20+ ryksuguvélmenni með sjálftæmingarstöð
Xiaomi Robot Vacuum X20+ ryksuguvélmennið er bráðsnjallt og öflugt vélmenni með sjálftæmingarstöð. Sjálftæmingarstöðin sér um að tæma rykhólf vélarinnar eftir þrif en einnig þrífur stöðin skúringarmoppurnar, fyllir á vatnstankinn og þurrkar moppurnar með lofti til að koma í veg fyrir myglu og ólykt. Ryksuguvélmennið er svo búið 360° rýmisskanna og myndavélakerfi til að rata vel og skipulega yfir rýmið.
Sjálfvirknivæðir þrifin
Sjálftæmingarstöðin á X20+ sjálfvirknivæðir þrifin algjörlega. Tæmingarstöðin sér um að:
- Tæma rykhólfið á vélinni á 10 sekúndum
- Geyma ryk frá allt að 75 daga þrifum
- Þrífa skúringarmoppurnar
- Þurrka moppurnar með lofti
- Koma affallsvatni frá þrifum í sérstakan óhreinan vatnstank
Auðvelt er svo að taka bakkann úr stöðinni til að þrífa
Aukinn sogkraftur og skúringargeta
Sogkrafturinn á X20+ var skrúfaður vel upp frá fyrri línum, en vélin skartar núna 6.000Pa sogkraft (vs. 4.000 á fyrri kynslóð) og ætti því auðveldlega að fjarlægja ryk og óhreinindi frá gólfunum.
Fljótandi skúringarmoppur bleyta ekki í teppum
Þegar ryksuguvélmennið nemur teppi og gólfmottur lyftir vélin skúringarmoppunum 7mm frá jörðu til þess að bleyta ekki í teppum. Skúringarmoppurnar snúast allt að 180 sinnum á mínútu og þrýstast líttillega niður við gólfið til þess að ná í burt erfiða bletti.
*Í Xiaomi Home appinu er hægt að afmarka svæði sem eru teppalögð
*Skúringarmoppurnar lyftast sjálfkrafa 7mm frá jörðu, ef að teppi eru 5mm eða þykkari er mælt með því að stilla vélmennið á "Avoid Carpets" í Xiaomi Home appinu svo að vélin bleyti ekki í teppum
Greinir aðskotahluti og býr til leiðir framhjá
Með S-Cross™ myndavélakerfinu greinir vélmennið aðskotahluti sem gætu annars flækst í vélinni s.s sokka, inniskó eða gæludýradót. Þegar vélin nemur þessa hluti þá býr hún til leið framhjá, þrátt fyrir lítil birtuskilyrði.
Tengist við Xiaomi Home appið
Í appinu er hægt að fara í gegnum margvíslegar stillingar til að auðvelda lífið. Hægt er að setja vélina af stað/senda hana heim, búa til vaktaplön, setja upp bannsvæði og afmarka teppalögð svæði.
360° rýmisskanni
Með 360° rýmisskanna ratar vélin einstaklega vel um rýmið og býr til hárnákvæmt kort. Með rýmisskannanum er vélin fljót að búa til kort af öllu heimilinu og jafnvel af nokkrum hæðum, ef að vélin verður batteríslaus í miðjum þrifum, snýr hún aftur í stöðina sína, hleður sig upp og fer síðan á nákvæmlega þann stað sem hún pásaði og heldur þaðan áfram til að klára þrifin.
Hvernig nálgast ég tilboðið
Sækja: Á opnunartíma er pöntunin tekin til fljótlega eftir pöntun og þú færð SMS þegar hún er tilbúin til afhendingar.
Heimsending: Hægt er að panta heimsendingu aukalega í greiðsluferli, við sendum strax eftir pöntun á opnunartíma.
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun