Gisting fyrir fjóra í tvær nætur á Akureyri Backpackers. Brunch innifalinn annan daginn
Nánari Lýsing
Skelltu þér norður og taktu fjölskylduna með. Gisting fyrir fjóra í fjölskylduherbergi á Akureyri Backpackers í hjarta Akureyrar. Brunch fylgir með annan daginn.
Akureyri Backpackers
Akureyri Backpackers er farfuglaheimili staðsett í miðbæ Akureyrar. Farfuglaheimilið býður upp á þægileg og hagkvæm gistirými fyrir ferðalanga, ásamt veitingastað og bar þar sem framreiddur er ljúffengur matur og drykkir. Við leggjum okkur fram við að bjóða bestu þjónustu og tryggja að dvöl gesta okkar verði ógleymanleg.
Farfuglaheimilið er staðsett á Hafnarstræti, í hjarta bæjarins, með helstu veitingastaði, bari og kaffihús innan tveggja mínútna göngufæris. Sundlaug Akureyrar með heitum pottum er aðeins í 500 metra fjarlægð, og leikhúsið og hinn frægi tónleikastaður „Græni hatturinn“ eru einnig í næsta nágrenni.
Gjafabréf í Veskið
Veskið er þar sem þú geymir og nálgast flug- og bíómiðana, afsláttarkortin, debet- og kreditkortin þín og Aha Gjafabréfin!
Gjafvænt, blaðrænt, stafrænt, veskisvænt eða símavænt.
Hvort sem þú ætlar að nýta gjafabréfið sjálf/ur, með öðrum eða gefa það sem gjöf þá bjóðum við upp á möguleika sem hentar hverju tilfelli.
Þú getur prentað gjöfina út sem fallegt gjafabréf sem er eingöngu merkt fyrirtækinu sem keypt er hjá og verð kemur ekki fram. Inneignina má einnig nota beint úr Aha appinu eða setja hana í Apple Veskið.
Smáa Letrið
- Bókaðu með því að senda tölvupóst á bookings@akureyribackpackers.com
- Mundu að taka gjafabréfið með þér
- Einnig er hægt að panta í síma 571-9050
Gildistími: 11.10.2024 - 11.11.2025
Notist hjá
Vinsælt í dag