Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundur: Benný Sif Ísleifsdóttir

Undarlegir hlutir eiga sér stað í sveitinni hans afa!

Það fréttir Baldur kvöldið áður en hann fer austur með pabba sínum og afa. Tæki brotna, kaðlar losna, vinnuvélar bila, smiður segir upp störfum … og þegar Baldur mætir á staðinn gerist fleira furðulegt:

  • Það kviknar og slökknar á sjónvarpinu
  • Borinn bilar
  • Nýi vinurinn er hræddur (sko alveg skíthræddur og neitar að
    fara inn í stofu)

Er eitthvað óhreint á sveimi í sveitinni? Og gæti það mögulega tengst álfum? Eru álfar til í alvörunni?

Baldur er ekki alveg viss en nýi vinurinn virðist sannfærður. Með talstöðvum, tommustokk, farsíma, beikoni og upplýsingum frá Bjössa besta skinni þokast rannsóknin áfram og ný vináttubönd verða til.

Álfarannsóknin er sjálfstætt framhald af Jólasveinarannsókninni sem út kom árið 2018 og er upplögð til lestrar fyrir alla þá sem hafa áhuga á dularfullum atburðum …

Myndskreytir er Elín Elísabet Einarsdóttir.

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun