Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundar: Gísli Egill Hrafnsson, Inga Elsa Bergþórsdóttir

Inga og Gísli Egill hafa lengi haft brennandi áhuga á mat og matargerð og viðað að sér víðtækri þekkingu og reynslu. Í þessari einstöku bók sýna þau hvernig fjölskyldan getur notið þess besta sem lífið hefur að bjóða með því að þiggja gjafir náttúrunnar; rækta, tína, veiða, verka og nýta – og elda síðan og framreiða það sem hollt er og gott.

Í bókinni má finna einfaldar leiðbeiningar um öflun, ræktun og meðhöndlun á ýmiss konar árstíðabundnu íslensku hráefni. Sagt er í myndum og máli frá fjölbreyttri matseld, verkun og vinnslu, svo sem súrdeigsbakstri, söltun, reykingu, ostagerð, pylsugerð og meðferð villibráðar.

En fyrst og fremst gefa Inga og Gísli Egill uppskriftir að miklum fjölda girnilegra rétta, ljúffengum hversdagsmat í bland við gómsæta veislurétti. Bókin er prýdd stórglæsilegum ljósmyndum af mat, matargerð, fæðuöflun og íslenskri náttúru.

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun