Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundur: DK

Hönnun – leiðsögn í máli og myndum er vönduð og yfirgripsmikil bók fyrir alla unnendur klassískrar hönnunar, jafnt áhugafólk sem fagfólk.

Í þessu viðamikla verki er stiklað á stóru um alþjóðlega hönnun og þróuninni fylgt eftir í tímaröð allt frá miðri 19. öld til nútímans. Víða er komið við; bílar og brauðristar, listasöfn og lampar, tannburstar og teskeiðar, vasar og vegglampar. Fjallað er sérstaklega um fræga hönnuði eins og Alvar Aalto, Eileen Gray, Georg Jensen, Philippe Starck og marga aðra.

Einnig er ágrip af sögu íslenskrar hönnunar þar sem fjallað er um byggingar, húsgögn og annan húsbúnað, listmuni, grafík eftir hönnuði á borð við Högnu Sigurðardóttur, Pétur B. Lúthersson, Dögg Guðmundsdóttur, Godd, Katrínu Ólínu Pétursdóttur, Vík Prjónsdóttur og Umemi. Íslenski bókarhlutinn er unnin í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands og Hönnunarmiðstöð.

Guðni Kolbeinsson þýddi.

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun