Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundar: Eva Mjöll Einarsdóttir, Heiðrún Erla Guðbjörnsdóttir, Sigurlaug Elín Þórhallsdóttir

Bókin Leikskólaföt frá Prjónafjelaginu geymir uppskriftir að fallegum prjónafjelagi flíkum handa börnum á leikskólaaldri, bæði fyrir byrjendur og lengra komna prjónara – sumar einfaldar og hefðbundnar en aðrar flóknar og frumlegar.

Flíkurnar henta íslenskum aðstæðum; markmiðið er að þær séu hlýjar og þægilegar, að hægt sé að vera í þeim bæði úti og inni, og ekki síst að börnin geti klætt sig í þær sjálf.

Flestar uppskriftirnar miðast við að nota megi tvenns konar garn, annars vegar innflutt og hins vegar íslenska ull sem er bæði hlý og vönduð, og oftast ódýrari kostur.

Í Prjónafjelaginu eru vanar prjónakonur sem hafa allar stundað prjónaskap um árabil.

Smellið hér til að sjá skjal með leiðréttingum (gildir um fyrstu útgáfu (2016)).

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun