Flokkar:
Höfundur: Eygló Jónsdóttir
Getur verið satt að við séum það sem við hugsum og að við sköpum það sem við hugsum. Eða eru hugsanir og hugmyndir kannski sjálfstæð fyrirbæri, eins og litlar öreindir sveimandi um loftið?
Samhengi hlutanna samanstendur af fimm smásögum úr daglega lífinu og fjórum þáttum úr lífi Jónasar, sem var jú augljóslega óskabarn þjóðarinnar.
Eygló Jónsdóttir er fædd og uppalin í Hafnarfirði og starfar þar sem framhaldskólakennari. Hún lauk masternámi í ritlist frá Háskóla Íslands og hefur sent frá sér tvær ljóðabækur og eina barnabók. Eygló hefur skrifað fjölda greina og situr í ritnefnd tímaritsins Mannúð sem fjallar um frið og mannréttindi.
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun