Ávinningur hugleiðsluiðkunar er afar margþættur og getur hjálpað þeim sem hugleiðir að takast á við fjölbreytt verkefni lífsins af bjartsýni og innri styrk. Hugleiðslurnar í þessari bók eru ætlaðar börnum og unglingum en það hefur löngu sýnt sig að hugleiðsla gagnast ungu fólki ekki síður en fullorðnum og getur verið ómetanlegt veganesti út í lífið.
Með bókinni fylgja 24 kort með jákvæðum skilaboðum og hugleiðslur fyrir hvert kort. Hugleiðslurnar leiða lesandann inn í upplifun á mismunandi styrkleikum, svo sem friði, umhyggjusemi, heiðarleika, öryggi, frelsi, sjálfsvirðingu og hugrekki.
Tilvalið er að draga heillakort daglega og gera hugleiðsluæfinguna sem á við eiginleikann sem dreginn er. Slík iðkun getur hjálpað einstaklingnum að laða fram sína bestu eiginleika svo þeir fái að njóta sín og skína.
Höfundur bókarinnar, Stefanía Ólafsdóttir, hefur haldið fjölmörg hugleiðslunámskeið fyrir börn og unglinga og kviknaði hugmyndin að efninu út frá miklum áhuga og eftirspurn unga fólksins.
Íris Auður Jónsdóttir myndskreytti.
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun