Jack er týndi sonur prestsins Johns Ames í smábænum Gilead. Ástir takast með honum og kennaranum Dellu Miles sem er líka prestsdóttir. En fagurt samband þeirra er þyrnum stráð. Della er svört á hörund og aðskilnaður kynþáttanna er þá enn ríkjandi víða í Bandaríkjunum.
Mögnuð skáldsaga um ást og átök, trú og siðgæði, illsku og hugrekki, vanmátt og von.
Jack er fjórða bókin í hinum víðfrægu Gilead-bókum sem þykja endurspegla á listilegan hátt þjóðarsál og margslungna sögu Bandaríkjanna. Hinar bækurnar þrjár eru: Gilead, Heima og Lila. Allar bækurnar fjórar hafa komið út í íslenskri þýðingu Karls Sigurjörnssonar.
Marilynne Robinson er einn virtasti rithöfundur samtímans. Bækur hennar hafa hlotið öll helstu bókmenntaverðlaun Bandaríkjanna og verið þýddar á 35 tungumál.
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun