Stóri bróðir er saga um hefnd og réttlæti, um kærleika og missi, ofbeldi og gamlar syndir.Svartklædd vera gengur í skrokk á manni við Rauðavatn og hverfur svo eins og vofa út í nóttina. Enginn veit hver árásarmaðurinn er eða hvað vakir fyrir honum. Stóri bróðir er hörkuspennandi glæpasaga sem heldur lesandanum föngnum frá upphafi til enda.Emil Þorsteinsson, blaðamaður, telur árásina tengjast öðrum árásum í Reykjavík og að svartklædda veran sitji skipulega um fórnarlömb sín. Rannsókn Emils leiðir í ljós að árásarmaðurinn telur sig ganga erinda þeirra sem eiga um sárt að binda; hann vilji útdeila réttlæti fyrir þeirra hönd.Stóri bróðir er spennandi og blóði drifin glæpasaga sem tekur óvæntar vendingar þegar minnst varir.