La Masia.
Laaa Maaasiaaa.
Öðru nafni Himnaríki.
Við vorum komnir þangað. Í Himnaríki.
Himnaríki í Barcelona ætti þessi bók að heita. Og hún hefði heitið það ef … æ, skiptir ekki máli. Þið skiljið hvað ég á við þegar þið eruð búin að lesa alla bókina.
Vinirnir úr Þrótti – Jón, Ívar og Skúli – eru komnir í fótboltaakademíu FC Barcelona. Markmiðin eru skýr: Fá tilboð um að vera áfram með liðinu eða komast á samning hjá öðru stórliði. Ekki spillir að Rósa er í Barcelona á sama tíma að keppa með U16 landsliðinu.
Lífið gæti ekki verið betra – ja, ef ekki væri fyrir þennan dularfulla Katalóna og leyndarmálið sem Jón þarf að burðast með.
FÓTBOLTASAGAN MIKLA … SNÝR AFTUR!
Barist í Barcelona er sjálfstætt framhald Fótboltasögunnar miklu eftir metsöluhöfundinn Gunnar Helgason. Fyrri bækurnar, Víti í Vestmannaeyjum, Aukaspyrna á Akureyri, Rangstæður í Reykjavík og Gula spjaldið í Gautaborg, hlutu allar frábærar viðtökur og eftir þeirri fyrstu var gerð vinsæl kvikmynd og sjónvarpsþættir.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er um 5 klukkustundir að lengd. Höfundur les.
Hér má hlusta á fyrsta kafla streymishljóðbókarinnar:
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun