Flokkar:
Höfundur: Steinunn Ósk Guðmundsdóttir
Brú yfir boðaföllin er fyrst og fremst bók um von, andlegan bata og þær aðferðir sem gerðu Steinunni Ósk kleift að sigrast á æskuminningum sem mörkuðust af kynferðisofbeldi og erfiðum heimilisaðstæðum.
Í bókinni deilir Steinunn þeim aðferðum sem hafa hjálpað henni að byggja upp brotna sjálfsmynd og finna þann styrk og þá gleði sem einkennir líf hennar í dag.
Bókin er uppgjör við erfiða fortíð og leiðarvísir að bjartari framtíð sem vonandi getur orðið þolendum kynferðisafbrota hvatning til að skila skömminni þangað sem hún á heima.
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun