Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundur: Kristín Helga Gunnarsdóttir

„Himnarnir hrynja þegar hann áttar sig á því að Emma liggur í bátnum. Hún liggur þarna eins og vatnadís með krosslagðar hendur á brjósti og krepptan hnefa um ísexi.“

Sjö nýstúdentar af fjallamennskubraut á Höfn stefna hver í sína áttina áður en vindurinn blæs þeim öllum inn í sama braggann skammt frá Jökulsárlóni. Þar stofna þau Fjallaverksmiðju Íslands – draumasamfélag til dýrðar náttúru, sjálfbærni og nægjusemi. Í bragganum er prjónað og bruggað, ruslað og eldað, elskað og dreymt, og boðskap Fjallaverksmiðjunnar er streymt beint á netið þar sem sífellt fleiri fylgjast með. En daginn sem Emma finnst á lóninu breytist allt.

Bækur Kristínar Helgu Gunnarsdóttur hafa notið mikilla vinsælda og hlotið margs konar viðurkenningar. Ungmennabókin Vertu ósýnilegur – Flóttasaga Ishmaels hlaut Barnabókaverðlaun Reykjavíkur og Fjöruverðlaunin og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Barna- og unglingabókaverðlauna Norðurlandaráðs.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 6 klukkustundur og 35 mínútur að lengd. Höfundur les.

Hér má hlusta á formála hljóðbókarinnar:

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun