Flokkar:
Höfundar: Kristín Ragna Gunnarsdóttir, Þórarinn Eldjárn
Gestaþáttur Hávamála geymir eldforna speki sem fylgt hefur norrænum mönnum um aldir. Hér enduryrkir Þórarinn Eldjárn lífseig spakmæli Óðins við fjörugar myndir Kristínar Rögnu Gunnarsdóttur í stórglæsilegri bók sem hentar allri fjölskyldunni.
Í bókinni er fjallað um góða siði, hegðun og samskipti, og meðal annars lögð áhersla á að rækta vináttuna, meta gildi lífsins og huga að orðstír sínum. Þetta er forn lífsspeki en það er margt sem nútímamenn geta lært af henni og tilvalið fyrir fullorðna að rifja upp spekina með ungviðið sér við hlið.
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun