Einstæð saga byggð á bernskuminningum höfundar
Danska skáldsagan Sá sem blikkar er hræddur við dauðann einstæð saga og vakti verulega athygli og úlfúð í heimalandi höfundarins þegar hún kom út, enda byggir hann söguþráðinn á eigin uppvexti í litlu þorpi nálægt þýsku landamærunum og þykir afar óvæginn gagnvart því umhverfi sem hann er sprottinn úr.
Drengurinn Knud á ekki sjö dagana sæla á bernskuárum sínum; þýsk móðir hans verður fyrir ofsóknum bæjarbúa vegna þjóðernis síns og Knud má þola gegndarlaust einelti annarra barna. Saga fjölskyldunnar er samofin tíðarandanum og fortíðin fylgir fólkinu eins og dimmur skuggi.
Þetta er kaldhæðin og eftirminnileg frásögn af einkennilegum dreng og áhugamálum hans en um leið nístingsköld lýsing á útskúfun og höfnun. Hér segir af fásinni, fordómum og harðýðgi í garð þeirra sem skera sig úr fjöldanum í litlu samfélagi á sjöunda áratugnum – en atburðirnir gætu eins gerst á öðrum stað og tíma.
Weekendavisen
„Frumraun Knuds Romer er afburðagóð bók um heimabæ hans.“
Information
[Domar]
„Þó að sagan eigi sér stað í Danaveldi á sjöunda áratugnum gæti hún í raun átt sér stað hvar og hvenær sem er. Knud tekst að fanga mannlegt eðli og tilfinningar á einstakan hátt. Hann hefur til að bera það innsæi sem nauðsynlegt er til að valda hugarangist lesenda jafn auðveldlega og að draga fram brosið. Bók hans á erindi við allt áhugafólk um fólk.“
Erla Hlynsdóttir / DV
[/Domar]
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun