Flokkar:
Sigfús Eymundsson myndasmiður er falleg bók um Sigfús Eymundsson (1837-1911) sem var frumkvöðull í íslenskri ljósmyndun. Hann hóf ljósmyndun árið 1866. Stundaði hana í aldarfjórðung og rak ljósmyndastofu í Reykjavík til ársins 1909. Með starfi sínu stuðlaði hann öðrum fremur að útbreiðslu og dreifingu ljósmynda meðal þjóðarinnar.
Inga Lára Baldvinsdóttir safnvörður Ljósmyndasafns Íslands í Þjóðminjasafninu rekur feril Sigfúsar og gerir grein fyrir stöðu hans sem helsta ljósmyndara landsins á 19. öld. Bókin hefur að geyma nýtt úrval mynda Sigfúsar.
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun