Flokkar:
Höfundur: Jón Örn Loðmfjörð
Sprungur er ljóðabók eftir Jón Örn Loðmfjörð og kemur hún út í 300 eintökum, með 300 mismunandi kápumyndum. Þetta er önnur ljóðabók sem höfundur gefur út sjálfur.
Jón Örn Loðmfjörð, sem yfirleitt er kallaður Lommi, er ein mest áberandi persónan í íslensku jaðarljóðasenunni. Hann stendur reglulega fyrir ljóðakvöldum, hélt úti ljóðagalleríinu 2015 er gildra og hefur ritstýrt ljóðadálkum Reykjavík Grapevine og menningarvefritsins Starafugli.
Áður hefur hann gefið út bækurnar:
– Brandarablandarar (með Eiríki Erni Norðdahl), 2008
– Síðasta ljóðabók Sjóns (með Arngrími Vídalín) 2008
– Usli (með Kristínu Svövu Tómasdóttur) 2009
– Gengismunur: ljóð úr skýrslu rannsóknarnefndar alþingis, 2010
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun