Heimilisfang
Velja afhendingarmáta

Frönsk málfræði er í senn uppflettirit með útskýringum á fjölmörgum málfræðiatriðum og handbók með leiðbeiningum um franska málfræði og málnotkun.

Bókin skiptist í tvo hluta:
a) Málfræði í stafrófsröð. Þar er auðvelt að finna einstök málfræðiatriði og útskýringar á þeim.
b) Hvernig á að …? Þar er sýnt með skýrri og fjölbreyttri framsetningu hvernig hægt er að tjá sig um ýmis atriði á frönsku og gefin dæmi um ólíkt málfar eftir aðstæðum.

Töflur og listar sýna beygingu 36 algengra sagna og notkun þeirra í samsetningum og sérstakar áherslugreinar vekja athygli á erfiðum málfræðiatriðum og leiðbeina um rétta notkun. Aftast í bókinni er atriðisorðaskrá á frönsku og íslensku. Bókin hentar öllum sem leggja stund á frönskunám, jafnt byrjendum sem lengra komnum.

Þýðandi: Sigríður Anna Guðbrandsdóttir.

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun